2.fl HK/Víkings 2009-2010:)

30.11.2008 19:29:06 / hk-vik2

Æfing

Á morgun æfum við á venjulegum tíma klukkan 19:30. Mikilvægt að sem flestar mæti því að það er síðan leikur á þriðjudaginn. Ef við þurfum að lesa fyrir próf eða annað slíkt er það alveg skiljanlegt og látið mig þá vita hvort að þið komist í leikinn á þriðjudaginn. Leikurinn er gegn Haukum á útivelli.


Kv.Mummi


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 08:24:10 / hk-vik2

Miðvikudagur

Á morgun, miðvikudag, æfum við á venjulegum tíma þ.e. 18:30 í Fagralundi.
    Það eiga aftur á móti margar eftir að hlaupa testið svo að það verður tekið á Kópavogsvelli klukkan 17:00 og vil ég sjá sem allra flestar enda bara Ragnheiður, Sólrún, Karen og Thelma sem eru búnar að hlaupa þetta.


Kv.Mummi


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.11.2008 20:06:11 / hk-vik2

Leikur við FH

Við spilum á morgun,sunnudag, klukkan 14:00 í Fifunni gegn FH. Eitthvað virðist vera um forföll þannig að allar í 2.fl æfingahópnum eiga að mæta klukkan 13:00.


Kv.Mummi


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 20:29:12 / hk-vik2

Leikur á sunnudag

Á sunnudaginn klukkan 14:00 leikum við gegn FH í Fífunni. Vegna þess hversu fáar mættu í hlaupatestið áðan þá veit ég í raun ekki hvernig staðan er á hópnum svo að þær sem sjá sér fært að mæta klukkan 13:00 á laugardag og eru ekki í mfl æfingahópnum eru beðnar um að commenta hérna að neðan og ég set síðan hópinn inn annað kvöld svo verið búnar að því fyrir þann tíma.


Kv.Mummi


» 14 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 17:32:18 / hk-vik2

Þriðjudagurinn

Á morgun, þriðjudag, tökum við hlaupaæfingu og svo verður dómararnámskeið út í Vík í beinu framhaldi. Við mætum sem sé klukkan 19:00 út í Vík með hlaupaskó og klæddar eftir veðri og dómaranámskeið hefst síðan 20:00 fyrr áhugasamar.

Kv.Mummi


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 12:00:10 / hk-vik2

Mikilvægt !!

Var rétt í þessu að fá símtal um að færa yrði leikinn í kvöld. Hann er því klukkan 19:00 á Fylkisvelli. Þetta er útaf einhverju klikki hjá ÍBR og verðum við að sætta okkur við þetta. Látum þetta ganga til allra svo að engin mæti nú á rangan völl.

Það er sem sé mæting 18:00 á Fylkisvöll

Kv.Mummi

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 18:28:03 / hk-vik2

Brauð fundur og leikur

Á morgun mætum við 12:15 í brauð og fund með foreldrum út í Fagralundi og svo er leikurinn klukkan 14:00 gegn Stjörnunni.

Mætum tímanlega
Kv.Mummi


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 13:51:12 / hk-vik2

Leikur á morgun við KR

Það er leikur á morgun hjá 2.fl á móti KR. Við eigum síðan 2 leiki um næstu helgi við Stjörnuna og Fylki þannig að það er nóg að gera hjá okkur og eftir helgina ættu allar sem eitthvað hafa mætt á æfingar að vera búnar að fá einhvern spiltíma. Leikurinn á morgun, miðvikudag, er klukkan 19:00 á KR-velli. Mæting í leikinn er klukkan 18:00 og ekki sek seinna. Þær sem eiga að mæta eru :

Karen Ósk
Arndís Rós
Ragnheiður
Anna Katrín
Ellen
Guðlaug
Helena Rós
Guðrún
Eva
Vigdís
Þórhildur
Regína
Íris D
Diljá
Inga HK
Inga Magnes

Við æfum síðan á okkar venjulega tíma á fimmtudag og spilum svo laugardag og sunnudag svo það er nóg að gera hjá okkur þessa daganna.


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 23:08:30 / hk-vik2

Bara leikur á sunnudag

Þórhildi til mikillar ánægju er bara einn leikur um helgina og hann er á sunnudaginn gegn Val.
Leikurinn er í Egilshöll og hefst klukkan 16:00 og verðiði því að vera mættar upp í Grafarvoginn ekki seinna en 15:00. Tinna ætlar að sjá um þennan leik þar sem ég verð í París en þær sem eiga að mæta eru eftirtaldar.

Karen Ósk
Arndís
Ragnheiður
Anna Karen
Ellen
Guðlaug
Helena Rós
Guðrún
Anna Dan
Berglind B
Vigdís
Þórhildur
Regína
Íris D
Lovísa
Sólrún

Þær sem spila ekki þennan leik munu fá spiltíma í næstu leikjum enda nóg af þeim á næstunni

Kv.Mummi


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 10:27:10 / hk-vik2

Æfing í kvöld

Mætin kl.19:30 í Kórinn í kvöld ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 16:38:25 / hk-vik2

Leikur við Þrótt

Jæja þá spilum við okkar fyrsta leik á rvk.mótinu. Það eiga allar sem eru leikfærar eða ekki á landsliðsæfingum að mæta og ekki mínútu seinna en 18:00.


Kv.Mummi


» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 43247
Klukkan
Könnun
A-deildarmeistarar?



RSS tengill
HK-VÍKINGUR