2.fl HK/Víkings 2009-2010:)

29.10.2009 08:12:24 / hk-vik2

Hola

Hæhæ:D

Í kvöld fimmtudag klukkan 20:00 eða 8.. ætlar mamma mín (Ása) að kenna smá förðun fyrir þær sem vilja í Fagralundi. 
Einnig verður smá fata- og skartgripa sala frá Grykklandi :) eyrnalokkar frá 500kr og engin flik er dýrari en 4500kr.
Allar sem eru að æfa með HK/Víking er velkomnar að mæta og væri gott að vita hvort það sé áhugi fyrir því...

Endilega kommentiði

kær kveðja karen ósk :)

p.s. þær sem vilja koma eiga að koma með meikið/púðrið sitt :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.10.2009 14:53:26 / hk-vik2

Æfing og fundur !

* Æfing næsta mánudag kl.18:00 í Kórnum (ath.muna eftir hlaupaskóm líka)

* Leikmanna- og aðstandendafundur eftir æfinguna í Fagralundi kl.20:00. Fjallað 
  nánar um þjálfaramál og starfið framundan.

Allir að mæta! Áfram HK/Víkingur :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2009 23:16:01 / hk-vik2

Fjúddí fjúú

Hejo !! :D
Smá æfingaplan út vikuna (held að þetta sé rétt hjá mér) =

- Miðvikudaginn í Fagralundi kl.18:30
- Fimmtudaginn í Kórnum kl.17:30
- Laugardaginn í Egilshöll kl.16:00

Vertu þar eða vertu skinka (fyrir utan Skinkubjörg;):haha:)!
Hellað fjör vúhúú 8)

Kveðja, LínusGauti


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.10.2009 16:50:52 / hk-vik2

SPURNING DAGSINS Í DAG

Jæja mínar uppáhalds fótbolta stúlkur hvenær er æfing í dag hehe ? 

Kveðja 
Lobba gleymna

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 22:50:31 / hk-vik2

Búmmsjaggalagga

Næsta æfing verður á miðvikudaginn í Fagralundi kl.18:30 :d
Vertu þar eða vertu hrísgrjón!
Hellað fjör vúhúú 8)

Kveðja, MistEik

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 16:58:29 / hk-vik2

næsta æfing

Það er æfing í kvöld, kl.18:00 í kórnum! Engar afsakanir, við fáum að vita hver nýji þjálfarinn er svo við skulum mæta allar!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.10.2009 09:24:01 / hk-vik2

Lokahóf HK


Hæhæ !

Fyrirpartý heima hjá Sif í Daltúni 40, held að það sé mæting þangað ca. hálf 7....

Lokahófið er síðan í Fagralundi (getum labbað frá Sif) Og það byrjar kl. 8, og maturinn er hálf 9 :)

Við þurfum að finna eitthvað skemmtiatriði, hafiði hugmyndir? Karen ósk??

Það er ekkert mál að gera bollu, en ég ætla ekki að sjá um það í þetta skiptið, ég gerði það síðast og það voru eitthverjar 2 sem borguðu ekki þannig ég fékk ekki allann pening sem ég eyddi í þetta.

Var það eitthvað fleira?

Kv. Sólrún Hjartagóða !

» 8 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 22:32:39 / hk-vik2

Lokahóf HK

Krúsídúllur! Vill einhver koma með rosalega gott blogg um lokahófið, klukkan hvað það er, klukkan hvað og hvar fyrirpartýið er.
Og svo eigum við víst að vera með skemmtiatriði líka ..

og eigum við ekki líka að vera með bollu eins og seinast?

Ég veit ekkert um þetta og örugglega fleiri sem eru í vandræðum.. :)
Vonandi nennir einhver hjartagóð stúlka að veita mér/okkur hjálparhönd.

Kv
Guðný Bjé


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2009 19:38:51 / hk-vik2

Næsta æfing

Næsta æfing er á fimmtudaginn klukkan 17:30 í Fífunni!

Jibbí :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2009 21:48:54 / hk-vik2

Æfing mánudag!

Sælar stelpur



Eins og áður er þetta mjög takmarkaður póstlisti, ég bið ykkur því um að láta þetta berast sem víðast.



Eins og þið hafið væntanlega flestar frétt þá óskaði Mummi eftir að láta af starfi sem mfl. þjálfari og höfum við náð samkomulagi um það. Við erum að vinna í því að ráða í hans stað og þau mál gætu skýrst fljótlega eftir helgi.



Við viljum hinsvegar hefja æfingar strax og boðum allan hópinn 2.+ mfl. upp í Kór á morgun, mánudag kl. 18:00. Vinsamlegast látið það berast



Kveðja, Óðinn

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2009 16:22:58 / hk-vik2

Lokahóf HK :)

Jæja stelpur, þá er komið að seinna Lokahófinu :)

Það er í Fagralundi 10. okt.. ekki morgun heldur næsti laugardagur :)

Allar sem ætla að mæta þurfa að kommenta hér, þarf að vita töluna fyrir sunnudagskvöld.

Makar meiga koma með fríkeypis, skrifa líka ef það kemur kæró meeð :)

Látið ganga stelpur :)

Kv. Sólrún


» 12 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 43247
Klukkan
Könnun
A-deildarmeistarar?



RSS tengill
HK-VÍKINGUR